|
SMÁRÉTTINGAR ALVEG RÉTT - STRAX! Opnunartími verkstæðis er frá 9:00 -18:00 alla virka daga.
|
Réttingar, mössun, lakkhreinsun eða blettun.28.03.12
Smárettingar er fyrirtæki sem er umhugað um útlitið. Í orðsins fyllstu merkingu. Við höfum nýverið flutt okkur um set í nýtt og stærra húsnæði, uppfært heimasíðuna og fjárfest í stórglæsilegu ljósaskilti. Við höfum aukið við mannskapinn og ráðið bílamálara til starfa sem er alger snillingur í öllu er viðkemur blettun, mössun og lakkhreinsun. "Pelinn", sendibíllinn okkar er meira að segja á leiðinni í almálun. Afréttarinn okkar, þessi sem lagar smádældirnar hefur endurnýjað verkfærasettið og farið í klippingu. Eftir sem áður leggjum við okkur fram við bjóða þægilega og persónulega þjónustu, bestu verðin og hámarksgæði í öllu er varðar viðhaldi á útliti bílsins. Flest okkar verkefni reynum við að inna af hendi samdægurs og verðin eru eftir því. Ef þú vilt hressa upp á útlit gamla bílsins (sem oft ber ekki mikinn kostnað), þá er málið að ræða við okkur. Ef þú ert að hugsa um að selja, þá aukast sölumöguleikar bílsins verulega eftir að við höfum farið höndum um hann. Ef þú ert að spá kaup á nýjum/notuðum, þá getur margborgað sig að sýna okkur hann áður kaup fara fram. Það er ekki einleikið hversu margar dældir bjóðast á fullu verði á bílasölum landsins og alger óþarfi að sætta sig við það! |
Smáréttingar ehf. | Smiðjuvegur 36 (gul gata ) | Sími: 588 4644 / 895 4644 | Netfang: smarettingar@simnet.is
